Um Ljóð fyrir loftslagið
Óperudagar efndu til ljóðasamkeppni fyrir grunnskólanema árið 2019, þar sem börnum var boðið að senda inn ljóð um náttúruna, loftslagið, framtíðarsýn sína og drauma. Hugmyndin á bak við keppnina var að fá innsýn inn í hugarheim barna og viðhorf þeirra til þessara málefna, ásamt því að efla þátttöku barna í menningarlífinu. Verkefnið var innblásið af aktífisma Gretu Thunberg varðandi loftslagsmálin. Nokkur ljóð voru valin úr um 400 innsendum ljóðum og í kjölfarið fengu ung norræn tónskáld það verkefni að semja við þau tónverk. Verkin voru frumflutt í Norðurljósum í Hörpu 6. nóvember 2021 en nokkrar upptökur frá tónleikunum má finna hér á síðunni.
Verkefnið er í frekari þróun í samstarfi við tónlistarhátíðina Nordic Song Festival (NSF) í Trollhättan í Svíþjóð og fleiri samstarfsaðila. Aðstandendur NSF pöntuðu ný tónverk fyrir barnakóra frá dönskum og sænskum tónskáldum við ljóð sænskra barna sem voru flutt sumarið 2022 á NSF. Næstu skref er að gefa nýju tónverkin út og þýða hluta af ljóðunum á hin norrænu tungumálin svo sem flestir barnakórar geti flutt verkin sem víðast.
Frá upphafi hefur verkefnið hlotið styrki frá Loftslagssjóði, Norræna menningarsjóðnum, Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóði.